Íslenska
VRENEN geymslukassinn verndar hluti eins og
útisessur og -púða og smærri garðverkfæri fyrir
sól, rigningu, óhreinindum, ryki, frjókornum og
snjó. Hann hjálpar þér einnig að hafa í röð og reglu
á hlutum þegar þeir eru ekki í notkun. Með því að
vernda hlutina þína í geymslukassanum haldast
þeir ferskari og nýrri lengur. Athugaðu! Ef þú
geymir vefnaðarvöru eins og útisessur og -púða,
vertu viss um að það sé allt alveg þurrt áður en það
er sett í geymslukassann.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Við mælum með því að geyma útisessur og -púða
í geymslukassanum til að halda þeim hreinum og
þurrum. Með því að geyma vörurnar á þurrum
og köldum stað viðheldur þú ferskleika varanna
og þær haldast lengur í góðu ásigkomulagi.
Geymslukassinn er ekki ætlaður börnum.
Geymslukassinn er með loftgötum í botninum til að
það myndist ekki gufa við hitabreytingar. Staðsettu
kassann þannig að vatn komist ekki í gegnum
loftgötin.
Við mælum með því að fylla ekki geymslukassana af
hlutum ― þá helst gott loftflæði í kassanum þegar
hann er lokaður og það sem er í honum heldur
ferskleika sínum lengur.
Gakktu úr skugga um að þyngdin dreifist jafnt um
kassann. Það má að hámark vera 70 kg í kassanum
ef þyngdinni er dreift jafnt um kassann.
Í miklu frosti getur plast tapað gæðum sínum,
hafðu því varan á þegar geymslukassinn er notaður
í miklum kulda.
Notkunarleiðbeiningar
Geymslukassinn þarf ekki viðhald. Ef honum er
haldið hreinum getur þú notað hann ár eftir ár.
Þrif: Þrífðu hann með mildum sápulegi. Það er ekki
mælt með því að þrífa plasthúsgögn með sterkum
eða hrjúfum sápulegi, það getur upplitað eða
skemmt yfirborðið.
10