Download Print deze pagina

IKEA SOLBLEKT Handleiding pagina 9

Beschikbare talen
  • NL

Beschikbare talen

  • DUTCH, pagina 7
ÍSLENSKA
9
Inniheldur:
Sex kúlur með þremur mismunandi
mynstrum og eina litla kúlu.
Fjöldi leikmanna:
2-6 leikmenn geta spilað í allt að þremur
liðum.
Markmið leiksins:
Að kasta kúlunum eins nálægt litlu kúlunni
og hægt er. Leikmaðurinn/liðið sem á kúluna
sem er næst litlu kúlunni fær stig. Liðið sem
nær fyrst 13 stigum hefur sigrað.
Leikreglur:
Finndu jafnsléttu utandyra. Jarðvegurinn
má hafa litlar misfellur og vera örlítið ójafn,
grýttur, þéttur eða úr fínni möl. Ekki er
mælt með því að spila á mjög hörðum eða
mjúkum jarðvegi eins og malbiki, steypu,
háu grasi eða fínum sandi.
Dragðu hring á jörðina þar sem leikmenn
eiga að standa þegar þeir kasta. Leikmenn
kasta upp á hver þeirra kastar litlu kúlunni í
upphafi leiks. Sami leikmaður kastar fyrstu
kúlunni. Svo kastar sá sem er næstur í
röðinni.
Þegar kúlunni er kastað þarf leikmaðurinn
að standa inn í hringnum þar til hún snertir
jörðina. Markmiðið er að kasta kúlunum
eins nálægt litlu kúlunni og hægt er. Það má
kasta í litlu kúluna. Leikmaðurinn eða liðið
sem á þá kúlu sem er næst litlu kúlunni,
fær einnig viðbótarstig fyrir hverja kúlu
sem er nær litlu kúlunni en næsta kúla
andstæðingsins.
loading