þar sem kvarnast gæti úr glerinu eða
yfirborð þess orðið fyrir skemmdum.
Efni eldunaríláta
• rétt: steypujárn, glerhúðað stál, ryðfrítt
stál, marglaga botn (með réttum
merkingum frá framleiðanda).
• ekki rétt: ál, kopar, látún, gler, keramik,
postulín.
Eldunarílát virka fyrir spanhelluborð ef:
• vatn sýður mjög fljótlega á hellu sem stillt
er á hæstu hitastillingu.
• segull togar í botninn á eldunarílátinu.
Mál eldunaríláta
• Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að
málum á botni eldunarílátanna. Sjá
„Tæknilegar upplýsingar" > „Verklýsing
fyrir eldunarhellur" fyrir rétta stærð
eldunaráhalda. Settu eldunarílátin á miðju
eldunarhellunnar sem valin var.
• Skilvirkni eldunarhellu er tengd þvermálum
eldunarílátsins. Til að ná sem bestri
hitadreifingu skaltu nota eldunarílát með
botnþvermál svipuð að stærð og
eldunarhellan (þ.e.a.s. hámarksþvermál
eldunarílátsins í „Tæknilegar upplýsingar"
> „Verklýsing fyrir eldunarhellur").
– Eldunarílát með þvermál sem er minna
en uppgefið lágmark tiltekinnar
eldunarhellu fær aðeins hluta af aflinu
sem eldunarhellan framkallar, sem
leiðir til hægari upphitunar.
– Af öryggisástæðum og til að ná fram
ákjósanlegri útkomu eldunar skaltu
ekki nota eldunarílát sem eru stærri en
gefið er upp í „Upplýsingar um
eldunarhellur". Forðastu að hafa
eldunarílát nálægt stjórnborðinu á
meðan eldun stendur. Þetta gæti haft
áhrif á virkni stjórnborðsins eða virkjað
óvart aðgerðir í helluborðinu.
Sjá „Tæknilegar upplýsingar".
7.2 Hljóðin við notkun
Hljóðin eru eðlileg og gefa ekki til kynna
neina bilun. Hljóð frá eldunarílátum geta
verið mismunandi eftir efni eldunarílátsins
og aflinu.
182
ÍSLENSKA
Hávaði sem tengist eldunarílátum:
• brakandi hljóð: eldunarílát er búið til úr
mismunandi efnum (samlokusamsetning).
• flautandi hljóð: þú notar eldunarhellu með
miklu afli og eldunarílátið er búið til úr
mismunandi efnum (samlokusamsetning).
• suð: notkun með miklu afli.
Hávaði sem tengist helluborðum:
• smellir: rafskipting fer fram.
• hvæsandi, suðandi: viftan er í gangi.
• taktfast hljóð: eldunarílát fannst.
7.3 Ábendingar og ráð fyrir
SenseBoil®
Valmöguleikinn virkar best til að sjóða vatn og
elda kartöflur.
Hann virkar ekki með steypujárni og
pottum með teflon eða álíka húðun t.d.
keramík húðun. Mælt er með
glerhúðuðum stálpottum til að ná sem
bestum árangri þegar kartöflur er soðnar.
Athugið hvort potturinn sem þú er með hentar
fyrir SenseBoil® með því að fylgjast með
fyrsta skiptinu sem þú notar hann.
Til að nota SenseBoil® á skilvirkan hátt skal
fylgja leiðbeiningum hér að neðan:
• Fyllið helming eða þrjá fjórðu pottsins með
köldu kranavatni þannig að 4 cm séu frá
vatninu að brún pottsins. Notið ekki minna
en 1 eða meira en 5 lítra af vatni. Gakktu
úr skugga um að heildarþyngd vatnsins
(eða vatnsins og kartaflanna) sé á milli 1-5
kg.
• Ef þú vilt elda kartöflur, skulu þær vera
undir vatni en verið viss um að einn fjórði
af pottinum sé tómur.
• Til að ná bestu útkomunni skal aðeins elda
heilar, óafhýddar meðalstórar kartöflur.
• Gangið úr skugga um að kartöflurnar séu
ekki of þéttar.
• Forðist að framleiða ytri titring (t.d. með
því að nota blandara eða með því að
leggja farsíma næst helluborðinu) þegar
kveikt er á valmöguleikanum.
• Ef þú vilt nota salt skal bæta því á vatnið
eftir að það nær suðumarki.
• Valmöguleikinn virkar ekki á réttan hátt
fyrir katla og expressokönnur.